Fór í heimsreisu með LÍ á árshátíð.Váá.. hvað er langt síðan ég hef bloggað og vona ég nú að það séu ekki alveg allir búnir að gefast upp á mér, batnandi fólki er best að lifa, Helga mín þú fyrirgefur

Meira að segja á þessu tímabili hefur vefstjórnin á blog.central breyst og kanski sé bara hægt að fara halda sig við þetta áfram.
En það hefur helling á daga okkar drifið hér á Hornó, bara brjálað að gera í vinnu á öllum vígstöðum, mín orðin verðugur trygginafulltrúi og svo er það efst á baugi núna í félagslífinu er
Landsmótkvennakóra núna í lok aprí. Ég er búin að fara þó nokkuð margar ferððar til borgar óttans í vetur til að sækja námskeið og vinnu, hef ekki alveg náð að vera sú besta mamma í heimi titli á þessum mánuðum þar sem börnin mín eru út og suður, en vonandi fer þetta allt að komast í réttan farveg og hægjast um hér.
Það stittist í sumarfrí, sól og sæla nema hvað, stefnum á Costa del Sol 29 mai og er farið að telja niður á mínum bæ. Annars gengur börnunum mínum vel að pluma sig, Magndís Lóa er orðin altalandi og alltaf e.h skemmtilegt sem vellur uppúr henni eing og t.d Hera Pera(leikskólakonan) og velta bræðurnir úr hlátri gersamlega þegar hún byrjar og finnst henni það ekkert leiðinlegt og eflist til muna. Peyjarnir eru bara duglegir í skólanum og samviskusamir á kafi í fótboltanum, eru sjálfala eftir skóla til 1600 þegar mamman nennir að láta sjá sig en þeir styrkjast bara á því og verða sjálfstæðir. Pabbinn sést ca 2-3 tíma á kvöldin þessa tíðina en veiðin hefur aldrei verið meiri á vetrarvertíð svo maður má þakka því það koma tímar í rólegheit síðar.
Um páskana var ráðist á baðherbergið og því hent öllu út um gluggann og erum við enþá bara með beran steininn þar inni og þar af leiðandi lykt og ryk í miklu magni, Þetta er sko bara að byrja því við erum þegar búin að bíða í 1/2 mánuð eftir pípurum og er ekki séð fyrir endan á því jibbí... á meðan notum við aðstöðuna á neðrihæðinni og sundlaugina. Það er lán í óláni að ekki sé búið að leigja íbúðina í bili. En þetta er spennandi verkefni og alveg hægt að missa sig í því og guuuuð hvað það verður gaman þegar það er búið.
En núna blasir við ein ein Reykjavíkurferðin(fór í eina skotferð með Steina á laugardaginn síðasta þar sem hann var að fara í skólann í Reykjó) Ég mun bruna með börnin með mér í þetta skiptið í fermingu hjá Heklu Lind frænku minni og svo er stefnt á Kartöfluball í Þykkvabænum á laugardagskvöldið og gista í sumarbústað við Rangá, ójá það er alltaf e.h í gangi svo manni leiðist svosem ekkert.
En eigum við þá bara ekki að segja þar til næst hum ha....